Vegna földa áskoranna ;)

Jæja er ekki tími kominn á smá blogg ég held það nú ... hjá okkur gengur allt sinn vana gang Ómar kominn í fæðingar orlof eftir hádegi og verður það fram í janúar, og það besta við það er að nú er loksins hægt að byrja uppi og er byrjað pabbi búin að vera nokkra daga og þeir búnir að setja upp milliveggjar grindina svo nú er hægt að sjá nokkurnvegin hvernig þetta á að líta út;) næsta skref er svo að setja hitan í gólfin... ég hlakka svo til að flytja upp að ég er einsog lítill krakki sem hlakkar til jólana og mikið finnst mér gott að finna þá tilfinningu, það sem mér finnst nefnilega leiðinlegast við að eldast er það hvað maður finnur alltof sjaldan fyrir virkilegri tilhlökkunar tilfinningu, svona að geta ekki sofnað á kvöldin því man hlakkar svo til einhvers;)

Sólveig blómstrar alveg þessa dagana er alltaf að koma með eitthvað nýtt babblar heilmikið og skríkir og hlær algjör dúlla:) farinn að fá smá graut og henni finnst hann svona rosalega góður, verður alveg stjörf af kæti þegar hú fær að smakka:) og svo gargar hún ef ég er ekki nógu snögg að setja upp í hana hehe ;) Svo fórum við með hana í sund og það var nú ekki lítið gaman :)

 Svo ætla ég að fara að mála í Þórunarstrætinu en hún er laus núna í 2 vikur og er ég búin að múta bróður mínum til að hjalpa mér:) og það sem hann fær í staðin er náttúrulega bara gleðin að vera mð mér allan þennan tíma sem er náttúrulega alveg príðis verðlaun fyrir drenginn hehe

 

jæja nóg raus í bili yfir og út


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá hvað ég skil að þig hlakki til að flytja upp.:) Ekkert smá flott hús heldur svona þar fyrir utan:) Orkan í þér manneskja mála líka í bland við allt hitt...duglegust. Flott hjá Ómari að skipta því svona, hefði ekki fattað það:)

Best að fara að borða kom svo vel út í dag...vííííí

Kv Ernan 

ERnan (IP-tala skráð) 9.10.2007 kl. 18:31

2 identicon

Já það er alltaf svo spennandi að flytja .... raða og allt þetta.... já það er nóg að gera hjá þér þessa dagana vera mamma, læra, og mála geri aðrir betur... en þegar ég sé þórunnarstræti verð ég að sega frá að ég átti heima í þórunnarstræti þegar ég var lítil ( 2-3 ára ) man ekki númer hvað, (skrítið :)..) en ég er nefnilega fædd á Akureyri, en flutti þaðan þegar ég var 6 ára...og finnst alltaf jafn gaman að koma norður.... jæja gangi þér vel í öllu amstrinu..kv Anna Ruth

Anna Ruth Antonsdóttir (IP-tala skráð) 11.10.2007 kl. 11:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Svava Hrund Friðriksdóttir
Svava Hrund Friðriksdóttir

Ég heiti Svava Hrund og er 27 ára sjúkraliði og vinn í heimahjúkrun á akureyri unnusti minn heitir Ómar og við eigum saman litla stelpu sem heitir Sólveig Erla og er 4 mánaða og svo eigum við líka Tátu sem er heimsins besti hundur;)  Við búum öll á svalbarðströnd á bæ sem heitir Sólsetur.

Eldri færslur

Nýjustu myndir

  • ...2624_344494
  • IMG_2801
  • IMG_2789
  • IMG_2795
  • ...2624_340159

Krúttlegust:)

DSCF9885

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 2
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 174

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 20
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

uppáhalds lagið mitt í augnablikinu

Luxor - When You Say You Love Me

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband